miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Area study og ungbarnasund............

Loksins, loksins stóra Area studyið búið. Búin að skoða fyrirtækið Pilgrim, sem selur skartgripi, fram og til baka og kanna hvort þeir eigi möguleika á USA markað. Er bara fegin að þetta er búið. Næst á dagskrá er 6 tíma próf þann 30 nóv. og svo munnlegt próf úr Area studyinu þann 4 des. Og hvað haldið þið. Ég mun brjóta ísinn með að byrja fyrst allra á því. Úff segi ég bara. Hin verða þó bara feginn þar sem ég set standardinn og ekki verður hann hár. Nei nei segi bara svona. Maður gerir sitt besta eins og alltaf og vonandi flýgur maður bara í gegn. Ég hef þó meiri áhyggjur af 6 tíma prófinu en við skulum vona að það gangi vel.
Baldur er annars að koma við hjá okkur í 2 daga akkúrat rétt fyrir próf en það verður í góðu lagi. Sendi strákana bara reglulega út með Ingu Rós þá get ég lært í friði hehe.


Ég er annars ekkert smá stolt af mér. Ég er búin að skrifa öll jólakortin og kaupa allar jólagjafir nema 3 sem verða líklega keyptar heima á Íslandi. Svo nú er bara að klára skólann og undirbúa skírn í leiðinni. En við ætlum að skíra milli jól og nýs árs. Það er nú eiginlega allt reddí fyrir það. Kjólllinn kominn, búið að panta prestinn, boðskortin farin út og bara eftir að panta kökuna, kertið og
gestabókina sem verður bara gert rétt áður en maður kemur heim. Maður er svo skipulagður hehehe.

Ég og Finnur fórum í dag með Ingu Rós í ungbarnasund og henni fannst það ekki leiðinlegt. Var ekkert smá dugleg skvísa. Kennarinn var ekkert smá ánægð að Finnur var þarna þar sem það er greinilega ekki algegnt að feðurnir koma með.

Jæja ætla hætta þessari vitleysu þar sem ein lítil blómarós er farin að kalla á mömmu sína.

Þar til næst
See ya

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ

Það er gaman að fylgjast með ykkur Kolding búum. Kem reglulega þó ég skrifi aldrei.. hahah.. Verð endilega að fá að hitta á ykkur þegar þið komið heim og fá að sjá ferskasta Koldingbúann.

Kv. Hrönnslan

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel í prófunum, þú átt eftir að rúlla þessu upp. Hlakka til að sjá ykkur þegar þið komið til Íslands.