þriðjudagur, janúar 23, 2007

Flutningar

Jæja ég ætla að byrja á því að biðjast afsökunar á þessu bloggleysi hjá okkur. Í fyrsta lagi þá datt netið okkar út vegna þess að við vorum að fara flytja og svo erum við búin að vera á fullu á mála, pakka og flytja. Og nú erum við loksins flutt og nýja heimilisfangið okkar er Christen Bergs Vej 11, endilega kíkið á linkinn og skoðið myndir af húsinu. Og ef þið viljið sjá meira af húsinu þá verðið þið bara að koma í heimsókn :)


Annars höfum við það bara nokkuð gott. Ég er búin að vera í skólanum síðan við komum til baka. Ég er í kúrs sem heitir Feasibility study og er núna að fara gera verkefni í því. Basically snýst þetta um að finna út hvort eitthvað project sé feasible/ þess virði að halda áfram með það eins og að opna búð. Ég er að gera verkefni fyrir NIKE á Íslandi og ætla ég að finna út hvort það sé möguleiki á að opna NIKE búð heima. Spennó.


Finnur er bara staying home dad á meðan og hugsar um Ingu Rós. Inga Rós blómstrar gjörsamlega. Hún er komin með 2 tennur í neðri góm (fundust reyndar um áramótin) svo hún er algjör dúlla þegar hún brosir þá glittir í þær.


Veðrið hér í Danmörku er ekki búið að vera upp á marga fiska bara rigning og rok, en í morgun þegar við vöknuðum þá var allt hvítt. Þá var bara búið að snjóa í alla nótt og það á víst að vera snjór næstu daga svo við sjáum til hversu lengi hann verður hérna hjá okkur. Maður var kominn með nettann leiða af rigningunni.


Jæja ætla fara hætta þessu rauli og fara koma mér í að halda áfram að læra.


Þar til næst

See ya

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mikið rosalega ertu orðin fullorðin, bara með hús og barna og mann og alles. Til hamingju með allt þrennt og húsið sérstaklega því það er nýjast og ég held ég hafi örugglega verið búinn að segja eitthvað með hitt :)

Ása Vilborg sagði...

Takk fyrir það. Já maður hefur fullorðnast heldur betur síðasta árið. Enda nálgast þrítugsaldurinn óðum :)

Nafnlaus sagði...

úúú fansí pansí .... hlakkar til að koma og prófa nuddbaðkarið hehe

Nafnlaus sagði...

til hamingju með slottið, þetta er sannkölluð glæsivilla, Hvernig er það eftir að hafa búið í svona lætur maður sér nokkuð nægja eitthvað minna? :)

Ása Vilborg sagði...

Hehehe nei ég held að þegar maður flytur heim aftur þá fer maður ekki í minna. Maður er með svo gott pláss núna og fínan garð :)

Nafnlaus sagði...

Til lukku með nýja húsið...asskoti flott...;O)
Bestu kveðjur út til Kolding...

Nafnlaus sagði...

geggjað hús!!! það er bara ekkert annað...... maður verður nú bara að koma út til ykkar og heimsækja húsið!!! hi hi ekki ykkur bara húsið og já kannski Ingu Rós líka,....
love you guys..