Jæja þá, ætli það sé ekki best að henda inn einhverjum fréttum af okkur fyrst fólk er byrjað að kvarta. Ég skal reyna að hafa þetta ekki of langt.
Snorri kom í heimsókn til okkar þann 23 nóv. Við fórum reyndar til Köben og náðum í hann og eyddum deginum í skítakulda í Jóla tívolíinu. Inga Rós skemmti sér konunglega þar og talaði látlaust um jólaljósin og julemanden sem hún sá.
Snorri var hjá okkur í viku og skemmtum við okkur konunglega allann tíma. Hér var drukkinn bjór og spilað Monopoly bæði í Wii og á gamla mátann. Snorri endaði reyndar alltaf í jailinu og Finnur þurfti alltaf að borga hátekjuskatt hehehe. Takk Snorri fyrir frábæra viku.
Jólaljósin eru komin upp hér á bæ. Og náttlega erum við með langflottasta húsið í götunni. Við komum smá jólaljósa meting á við nágranna okkar sem er bara gaman :)
Svo verður bara farið að kaupa jólatré næstu helgi. Ingu Rós finnst allt þetta jóladót og ljós svo gaman. Svo fær hún Kalander gave á hverjum degi frá julemandinum og ekki leiðist henni það.
Við fórum með Ingu Rós upp á spítala s.l. fimmtudaginn til að athuga betur þetta mishljóð sem heyrðist í hjartanu hennar. Sem betur fer fannst ekkert alvarlegt svo við fórum heim með vel léttar axlir þennan dag. Þetta hljóð er bara þarna og mun hverfa með tímanum.
Við héldum svo upp á afmælið okkar á föstudaginn með tilheyrandi áti og drykkju hjá mörgum. Enda fóru síðust gestirnir ekki heim fyrr en að verða 5:30. Hjördís vinkona mætti á svæðið frá Århus og einnig stakk Jónas frændi inn nefinu, en hann er nýfluttur til Köben. Svo hann eyddi helginni hérna hjá okkur. Takk öllsömul sem mættu. Þetta var virkilega gaman.
Til hamingju með afmælið í gær Guðni minn. Svo náttlega er Finnur 29 ára í dag og ég verð svo 28 ára á morgun bara gaman :)
Jæja ég held að þetta sé komið nóg af fréttum í bili.
Þar til næst
See ya
mánudagur, desember 08, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Til hamingju með afmælin ykkar :)
Knús,
Björg í Almind
Til hamingju með afmælin
kveðja
Ásta og co
Ég hef greinilega misst af heljarinnar afmælisveislu... enn og aftur til lukku með afmælinguna...
Auðvitað eigið þið flottasta jólahúsið í götunni - ekki að spyrja að því ;)
knúsíklessu
Laufey
Skrifa ummæli