miðvikudagur, júlí 05, 2006
Sól, sól skín á mig.........
Jæja er ekki best að skrifa eitthvað svo fólk sjá að maður enn á lífi hérna í Danmörku. Eða getur maður sagt að maður sé á lífi. Það er búið að vera svo heitt hérna og veðrið á að halda áfram svona næstu daga svo að ég ólétta konan er gjörsamlega að kafna. Maður situr hérna inn með alla glugga opna og viftuna á fullu að maður finnur engann mun hvort maður sé inni eða úti. Ekki sniðugt.
Annars vorum við skötuhjúin að koma frá útlöndum. Já tókum bílaleigubíl og skelltum okkur í bíltúr til Stokkhólms. Tók ekki nema 9 tíma að keyra en það var þess virði.
Við fórum í heimsókn til frændu mína þar og gistum við hjá Kristjáni og hans konu, Ulriku, en þau giftu sig í febrúar. Þetta var alveg æðisleg ferð. Við heimsóttum Kalla bróður hennar mömmu og Maríu konu hans, en þau þurftu reyndar að fara til Finnlands á föstudeginum svo það var stutt stopp hjá þeim.
Ég og Finnur gerðum annars lítið nema labba um Stokkhólm og sitja á kaffihúsum þegar ég var orðin of þreytt. Því það er ekkert grín að labba í þesum hita. Fæturnir á mér voru svo þrútnir á kvöldin að það var eins og einhver hefði tekið stóru tánna mína og blásið hana upp eins og blöðru.
Föstudagskvöldið kom Sammi frændi og við grilluðum og spiluðum viking spil eða Kubb eins og sumir kalla það. Þar rúlluðum ég og Ulrika strákunum upp. Spiluðum 4 leiki og þeir unnu einn leik hehehehe. En þetta er stórskemmtilegt spil sem maður þarf að eignast.
Á laugardeginum skelltum við okkur í siglingu til archipelago eða eyjarnar hérna út við Svíþjóð. Fórum reyndar bara í eina sem heitir Grinda því þær eru ekki nema 24.000. En þetta var ótrúlega gaman. Fengum náttlega bara gott veður og svo það var bara slakað á og borðaður góður matur. Við ákváðum að kíkja á sænska næturlífið sem var bara gaman sérstaklega þar sem það má ekki reykja á pöbbum og klúbbum í Svíþjóð vegna reykingarbanns. Þetta var bara einstök upplifun að fara út að skemmta sér og koma ekki reyktur heim.
Ég henti inn nokkrum myndum frá Svíþjóð inn svo þið getið skoðað þær hérna ef þið viljið.
Núna er maður bara að gera allt reddí fyrir krílið sem má nú alveg fara koma, er eiginlega ekki að nenna þessu lengur. Ég er búin að þvo allt saman nema sængina sem við fengum frá Stínu ömmu þar sem þurrkarinn er bilaður og ég er að bíða eftir að hann komist í lag. Svo erum við búin að setja saman rúmið sem mamma hans Finns gaf okkur og svo fengum við skiptiborð og upp í barnavagninn frá mömmu og pabba og er þetta allt komið á sinn stað.
Annars var ég að spá í að henda inn óformlegri könnun. Það eru nokkrir farnir að spá því hvenær barnið kemur og hvort það sé stelpa eða strákur, svo það væri gaman að fá að heyra frá ykkur hvenær þið haldið að barnið komi í heiminn og hvort kynið það er. Svo það sé á hreinu þá er ég sett 20 júlí. Finnur segir að það komi seinnipart næstu viku og hann segir að þetta sé strákur. Ég segi 16 júlí og ég held að þetta sé strákur. Endilega látið ljós ykkar skína.
Allavega þar til næst
See ya
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
14 ummæli:
þetta er örugglega strákur og ég bíð spenntur eftir að kaupa lítinn man. united galla á krílið :)
iss pottþétt lítil ása til að punta upp ;)
ég ætla bara að vera þarna mitt á milli og segja 18.júlí og stelpa:)
ég segi 19 og Þetta er stelpa sem heitir mummi
Hehehe Doddi þú veist hvað ég mun gera við gallann og það verður ekki til að klæða barnið í :)
Ég segi 20.júlí - á settum degi - og það verður strákur.
hmmmm ég ætla að giska á 27 júlí... og kyn.... stelpa....
úff ég finnti með þér að vera ólétt í hitanum, grét í 2 vikur á spáni fyrir 6 árum bara lítið ólétt samt ( 5 mánuði eða eitthvað) Hef aldrei verið með eins mikla heimþrá og þá...
Gangi ykkur ofsalega vel og njótiði næstu daga eins og hægt er og HLAÐIÐI BATTERÍIN !!! Muahahahhah
knús Halla
Ég held að þetta sé stelpa og ætla að vera svo bjartsýn og segja að hún komi á settum degi(eins og mín dama)..stundvísir baunabúar. það er nú aðeins "kaldara" í dag en hefur verið þannig að við getum kannski hreyft okkur án þess að svitna...öfunda þig ekki að vera ólétt mér finnst nógu heitt að hafa mína liggjandi hérna hjá mér..
kveðja
gunna og ingunn anna
ég segi 17. júlí...heldur eflaust að það sé 17 júní og þar af leiðandi verður þetta daman því enginn gaur mundi ruglast svona og Man.United búning verður ekki sóað í die hard liverpool og Chelsea aðdáanda sem mundu eflaust bilast úr afbrýðissemi og brenna búninginn...en þetta er orðið ansi þunnt þannig að
píZ
Ég seigi að barnið komi 30 júlí og það verði strákur ;) 15 merkur og 52 cm ljóshærður og bláeygður.......bara svona til að hafa þetta eins nákvæmt og ég get.
En gangi ykkur ofsalega vel svona á síðustu sprettunum.
Bestu hríðar og rembingskveðjur
Unnur
19 júlí og það verður strákur...:) gangi ykkur alveg rosalega vel...baráttu kveðjur frá Heiðunni hlakka til að heyra hvernig gengur...:) knúss og kram elskurnar mínar
ég held að þetta sé stelpa sem er stríðnispúki og komi ekki fyrr en 28. júlí
kveðja
Ásta Jenný
Á ekki að koma með síðustu bumbumyndirnar?
best regards, nice info Cruise lines contracts Proactiv intenational shipping Cohf orgy 1994 chevrolet caprice Phentermine comparison tenuate Xanax and withdrawal http://www.cherish-perfume-revlon.info/este-lauder-skin-care.html
Skrifa ummæli