Þá er þessi litla skvísa orðin 2 mánaða í dag. Vá hvað tíminn flýgur hratt. Finnst svo stutt síðan ég fékk hana í fangið í fyrsta sinn. En svona er þetta.
Af okkur er allt gott að frétta. Inga Rós brosir og hjalar eins og hún fái borgað fyrir það og skemmtir okkur foreldrunum á meðan.
Við mæðgurnar ætlum að fara hreyfa okkur og ná af okkur spikinu fyrir jólin og erum við búnar að skrá okkur í mömmuleikfimi en ég má taka hana hana með í tíma og svo er ég líka að byrja styrkja vöðvana með því að lyfta og kemur Inga Rós bara með en hún sefur bara í vagninum á meðan.
Annars er voða lítið að frétta eins og er. Ég er á fullu að púsla saman skóla og fæðingarorlofi sem gengur vel en vetrarfríið er að byrja eftir rúma viku eða 13 okt en þá verð ég bara heima að hugsa um skvísuna og læra. Og jú ég er komin með fyrirtæki fyrir placementið mitt JIBBÍÍÍ. Ég mun vinna lokaritgerðina mína fyrir Icepharma. Á eftir að finna út hvað ég geri en það verður eitthvað sniðugt. Konni er að koma í heimsókn núna á föstudaginn og verður yfir helgina. Svo erum við líka að bíða eftir að Guðni verði pabbi en barnsmóðir hans var sett í gær og vonum við að hún þurfi ekki að bíða svona lengi eins og við þurftum.
Jæja ætla að fara hætta þessu bulli. Sumar eru orðnar svangar og Finnur er í Þýskalandi að versla.
Þar til næst
See ya
miðvikudagur, október 04, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Til hamingju með 2 mánuðina!! Ekkert smá sæt mynd af skvísunni - við Mummi hlökkum til að sjá ykkur hér í Köben í lok mánaðarins:)
Til lukku með dísina....
til hamingju með snúlluna ..... "og finnur er í þýskalandi að versla" ... segir þetta eins og hann hafi bara skroppið út í búð ;)
hehehe já hann skrapp út í búð hún er bara 90 km í burtu :)
Skrifa ummæli