sunnudagur, apríl 20, 2008

Vorið er komið og grundirnar gróa........

Æi maður er eitthvað svo voða latur í að blogga. En ég ákvað nú að henda inn nokkrum línum til að segja ykkur hvað við höfum verið að gera af okkur. Svona ef þið hafið áhuga. Maður veit nú ekki hver les þetta blogg í dag því það kvittar enginn.
En jæja Finnur lét einn af sínum draumum rætast og keypti sér flatskjá. Og við erum ekki að tala um lítinn heldur keypti hann 46" flatskjá. Þetta er frekar stórt svo nú verða reglulega bíókvöld hér á bæ. En hann bætti náttlega við pakkann og keypti nintendo wii sem er reyndar bara gaman og geggjað stuð að spila á svona stórann skjá. Finnur er allavega mjög glaður þessa dagana. En þar sem hann fékk að kaupa sjónvarp þá fékk ég að fjárfesta í nýju rúmi sem er bara draumur í dós. Það er verst að nýja rúmið er mikið stærra en það gamla að við týnumst í því.

Ég er búin að bóka flugið heim í sumar og munum við fljúga heim þann 30 júní og stoppum í 2 mánuði eða til 30 ágúst. Finnur ætlar líka að vera á ferð og flugi í sumar en hann ætlar að skella sér til Argentínu í tvær vikur í byrjun júlí og svo kemur hann líka til Íslands í nokkra daga í ágúst því okkur er boðið í brúðkaup og svo náttlega á verður litla dýrið 2ja ára.

Annars er vorið komið hérna í DK. Mikið var segi ég bara. Ég byrjuð að hengja upp þvottinn úti og hann þornar á svipstundu sem er bara geggjað. Svo förum við í það að taka upp garðhúsgögnin og koma þeim fyrir á pallinum. Við erum líka búin að vera dugleg í garðinum og reikna ég með næstu 2 helgum í það að róta upp beðum og setja niður blóm.

En svo vil ég bara minna á íslenska heimasímann okkar 496-0229 svona ef einhverjum dauðlangi til að tala við okkur. Kostar sama og hringja í heimasíma á klakanum.

Þar til næst
See ya

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég kíki alltaf reglulega þrátt fyrir að vera löt að kvitta fyrir komunni! ;O)

Til lukku með nýju heimilishlutina...alltaf gaman þegar maður getur "uppfært" hlutina...hehe.

Hilsen á ykkur þrjú...

Björg Leós

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með græjurnar nýju. Hvað enduðuð þið á Sony eða hinu sem ég man ekki í augnablikinu hvaða týpa var?

Nafnlaus sagði...

Kíki líka hingað reglulega...gleymi bara að kvitta...ætli þetta sé alzheimer light mhúhahahha
Til hamingju með nýju mublurnar...hilsen heim

Harpa Hall

Nafnlaus sagði...

hæ hæ

Ég kíki líka alltaf reglulega, er bara ekkert sérlega dugleg að kvitta ;)

kveðja
Ásta Jenný

Nafnlaus sagði...

úúúúúú hlakka til að fá ykkur "heim" í sumar :)

Nafnlaus sagði...

knús til ykkar allra frá okkur hinum á klakanum.

Nafnlaus sagði...

Kíki líka við öðru hverju en alltaf eitthvað að "flýta mér" þannig að það gleymist eiginlega alltaf að kvitta fyrir komuna :S skamm Petra hehe..:P

En það er eins gott að þið verðið heima í ágúst.. því það er verið að spá MIKIÐ í því að kíkja til ykkar :D Bara gaman :)