
Við keyptum 15 kassa af bjór(3 kassar kostuðu 100 dkr), 3 kassa af gosi(3 kassar kostuðu 100 dkr) og 3 kassa af píkubjór(kassinn var á 100 dkr), líter(líterflöskurnar kostuðu 90 dkr) af vodka, viský, malibu, gin, 3 rommflöskur(sem kostuðu 100 dkr allar saman), snafs sem heitir krít og bragðast eins og skólarkrítarnammið, dooley's, rauðvín, rósarvín og hvítvín.
Ef maður sækir um nógu snemma ætli maður komist þá inn á Vog þegar skólinn er búinn. Athuga málið.(myndir af Þýskalandsferðinni komnar inn)
En þetta var annars mjög gaman að prufa þetta og maður á eftir að fara aftur til Þýskalands þegar þessar birgðir klárast.
Laugardagurinn var mjög rólegur, prufaði að baka brauðbollur í ofninum sem heppnuðust svona rosavel og svo fórum við til Dodda og Írisar að spila póker sem er mjög gaman og bara vinsælt hérna í Danmörku.

Á sunnudeginum elduðum við okkur Ný Sjálenskt lambakjöt sem var í hvítlauksmareneringu og það var mjög gott. En mig langar samt ógeðslega mikið í íslenskt lambalæri nammi gott. Kannski mamma og pabbi komi með eitthvað gott frá Íslandi þegar þau koma í heimsókn, maður veit aldrei.
Jæja ég er að spá í að fara vinna að fyrsta verkefninu í skólanum en ég á að gera framtíðaráætlun og skrifa niður hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór hahaha ég verð aldrei stór bara eldri og vitrari.

See ya
3 ummæli:
þetta er allt í vinnslu elskan ;)
Maður getur alltaf orðið stór á hinn kantinn hehehehe.....
Leiðilegt að þið komið ekki næstu helgi - var farin að hlakka til. En það bíður bara betri tíma :o)
Ég kem þegar Fimmkall er kominn í lederhosen.
Skrifa ummæli