Þá er haustið komið með kulda, rigningu og vindi. Svo það var ósköp notalegt að Finnur er með vinnubíl og var að fara vinna í Kolding í dag því ég fékk hann til að skutla mér í skólann í morgun þar sem það var svo leiðinlegt veður.
Ég fór á listasafnið hérna í Kolding sem heitir Trapholt og það voru áhugaverðir hlutir þarna eins og gullfiskar í blandara, uppþornuð bananahýði og rotnandi fuglar. Og fólk kallar þetta list fuss og svei.
En það var eitt þarna sem ég hafði meiri áhuga á og það var svokölluð Plastic Fantastic sýning með fullt af dóti búnu til náttlega úr plasti en þessi stóll fékk alla mína athygli þar sem hann er alveg eins og stóllinn sem við frændsystkinin lékum okkar að þegar við vorum yngri ehima hjá ömmu & afa.
Geggjaður finnst ykkur ekki.
Jæja ég ætla að fara undirbúa mig fyrir dönskukennslun sem við erum að fara í í kvöld.
See ya
þriðjudagur, október 25, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Brrrrr haustið er líka búið að bíta okkur.... brrrrrr
æji hvað ég held að það sé notalegra hjá þér en okkur hérna heima, það var 7 stiga frost hérna í morgun, og 2 cm íslag utan á bílum hérna, maður þurfti eiginlega kúbein til að brjóta klakan utan af kagganum !!
Alltaf sól og blíða í mínum heimi.
Skrifa ummæli