mánudagur, mars 27, 2006

Sommertime

Daylight Savings
Þá er sumartíminn kominn hérna í DK svo við erum 2 tímum á undan ykkur heima á Íslandi. Get samt ekki sagt að veðrið sé eitthvað sumarlegt en vonandi kemur það sem fyrst.
En allavega er ég komin til DK aftur eftir allt of langa dvöl í UK sem var mjög gaman en það er ofsalega gott að vera komin hjem til Finns aftur. Ég er búin að hafa það mjög gott þessa fáu daga sem ég er búin að vera hérna í DK og borða mjög góðan mat þar á meðal Jensen Bofhouse nammi gott.

Fyrsti skóladagurinn var í dag og það var frekar erfitt að byrja aftur og rifja upp það sem við vorum að tala um í desember. Heilinn var ekki alveg að fúnkera svona fyrsta daginn.
Student Head Explodes
Annars höfum við 3 það bara nokkuð gott. Erum að fara í sónar á morgun svo það verður voða gaman að sjá barnið aftur þar sem ég fór í sónar í UK en Finnur er að sjá það í fyrsta sinn. Vonandi verður það í fullu fjöru eins og venjulega og sparkar eitthvað svo Finnur sjái. Reyndar vill það ekki alveg leyfa pabba sínum að finna spörkin svo ég vona að það sé ekkert persónulegt Rolly 1

Og ég er búin að setja inn nýjar bumbumyndir þar sem okkur var farið að berast formlegar kvartanir og upphringingar. Brows

Jæja þar til næst
See ya

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

stórt knús - góða helgi - gott að vera minnt á tímabreytinguna

Nafnlaus sagði...

Jemundur minn hvað það fer þér vel að vera með laumufarþega um borð. Þú ert alveg svakalega krúttleg og geislar öll. Farðu alveg ofsalega vel með ykkur og fariði að plana ferð í stóru borgina.

Kossar og Knús