kom í heiminn lítil stúlka. Foreldrar hennar eru Mæja og Óli vinir okkur frá DK. Finnur var voða glaður með þessa afmælisgjöf.
Við viljum bara óska Mæju og Óla innilega til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn.
Bestu kveðjur
Ása & Finnur
Eins og ég sagði áður þá fór ég í dagsferð til Hamborgar með skólanum síðastliðinn mánudag. Ferðin hófst með rútuferð kl. 7 um morgunin. Þegar við komum til Hamborgar þá var skítakuldi og það var byrjað á því að fara í siglingu um höfnina sem farið hundleiðinlegt. Eftir það fórum við og skoðuðum City Hallið hjá þeim sem var ágætt og byggingin var mjög falleg. Fórum svo og skoðuðum verk eftir einhvern listamann en þau litu út eins 3 ára krakki hefði teiknað þau. við fengum svo 3 tíma útaf fyrir okkur sem við máttum nota til að versla eða skoða jólamarkaðinn sem var mjög gamann. Maður komst hreinlega bara í jólafíling þarna labbandi um í skítakulda og hlustandi á jólalög. 

Þar til næst
See ya
Jæja þá er það komið á hreint að ég er að fara til Englands í janúar í placement og kem ekki til baka fyrr en í endan mars. Þetta er lítill bær sem heitir Wyre Borough og er í Lancashire sem er ekki langt frá Blackpool. Ég verð að vinna á ferðamannaskrifstofu ásamt tveimur öðrum úr bekknum mínum, Snorra og Ole. Við munum öll búa saman og fáum kannski bíl til umráða til að keyra til og frá vinnu og einnig til að fara í verkefni út í bæ. Bara geggjað, veit samt ekki hvernig það verður að keyra vinstra megin hehehehe en það kemur í ljós.Þetta var nú bara það eina sem ég vildi segja
Þar til næst



Ég fékk meira segja fyrirfram afmælisgjöf frá mömmu og pabba sem var geggjað pils og belti. Takk mamma og pabbi.
með brúnuðum kartöflum og sveppasósu og váááááááá hvað þetta var gott.

Jæja þar til næst


Ekkert smá flottur og Finnur fílaði sig í tætlur á svona flottum bíl. Við náðum svo í Ívar sem er á öðru ári í IBA og ætlaði hann að sýna okkur leiðina og hvar verslunin var en við villtumst smá en það reddaðist svo að lokum. Við versluðum fullt fyrir lítin pening. Ég held að við eigum áfengi allavega út árið, en það fer allt eftir því hversu duglegir gestirnir verða, sem eiga eftir að koma í heimsókn. By the way Kristín ég er enn að bíða.
Finnur keypti svona tösku með 500 pókerpeningum í ásamt 2 spilastokkum og teningum í voða flottri áltösku á 200 dkr. Vorum að skoða þetta á www.gismo.is sem eru að selja þetta heima og þar kostar svona taska, eins og Finnur keypti sér, 12.990.- sem er fáranlega dýrt. Álagning dauðans.
að losa mig við þynnkuna og setjast bara út og lesa í góða veðrinu. En alla vega báðir kostirnir mjög svo heillandi